Um mig
Ég starfa ein að allri hönnun og legg mikla áherslu á nákvæmni, gæði og fagleg vinnubrögð. Ég er metnaðarfull og ákveðin í minni sýn, og fínpússa hvert smáatriði þar til útkoman er nákvæmlega eins og hún á að vera. Stílhrein, vönduð og persónuleg.
Sem manneskja er ég skapandi og með sterka tilfinningu fyrir fagurfræði, en á sama tíma skipulögð og ábyrg í vinnubrögðum. Ég legg hjarta mitt í hvert verkefni og fyrir mér er þetta meira en bara vinna, þetta er ástríða. Mér finnst einstaklega gaman að skapa eitthvað sem endurspeglar aðra og gera hugmyndir að fallegri, áþreifanlegri hönnun.
Hafa samband
Endilega hafðu samband ef þú hefur einhverjar spurningar eða önnur erindi.