Algengar spurningar
-
Eins og staðan er núna þá er ekki hægt að panta í gegnum vefsíðuna mína. Þú getur hafið samband við mig í gegnum email eða Instagram! Þar sendiru mér hvernig plakat þú vilt (who’s that girl, vogue eða einhverja afmælisgjöf fyrir vinkonu þína o.s.frv.), og svo sendiru mér myndir til að nota!
-
Það fer eftir sendingarkostnaði en þau kosta um 5000 kr.
-
Þetta er í A3 stærð (30 cm x 42 cm), það eru fullkomnir rammar fyrir plakötin í Bauhaus!
-
Ferlið sjálft getur tekið allt að viku. Það tekur nokkra daga fyrir mig að búa til plakatið, svo tekur það einn dag til að prentast og svo sendingarferlið tekur nokkra daga.
-
Neibb! Ég sé um að skrifa textann. Ekki nema þér langar sérstaklega til þess þá er það auðvitað í lagi. En svo að plakatið passi vel við þig eða þann sem á að fá þetta þá er gott að fá nokkur lýsingarorð sem passa.
-
Nei, það er ekkert mál! Ég sendi um allt land og líka til Vestmannaeyja en það þarf að hafa í huga að sendingarkostnaður bætist ofan á!
-
Ef þú getur sótt plakatið í Reykjavík hjá prentsmiðjunni Pixlar þá kostar þetta 4000kr. Ef þú vilt fá það sent í póstbox kostar það auka 2000 kr og ef þú vilt fá það alveg heimsent þá er það auka 3000 kr.
-
Ég bý til plaköt fyrir alls konar tilefni! Ég geri plaköt fyrir afmæli, fermingar, brúðkaup, allt í tengslum við barneignir og meiri að segja fyrir steggjun eða gæsun o.s.frv.! Ég er mjög opin fyrir alls konar hugmyndum! Plakötin afhendast í umslagi með hörðum pappa fyrir aftan til að koma í veg fyrir að plakatið beyglist.